• Sjóminjasafnið Ósvör

Sjóminjasafnið Ósvör

Ósvör Maritime Museum

Við Óshlíðarveg, 415 Bolungarvík

892 5744 osvor@osvor.is

Instagram.com Facebook.com

Sumar 2023 10. júní-20. ágúst Alla daga kl. 10-16

Aðrir tímar eftir samkomulagi

Sjóminjasafnið í Ósvör stendur austast við Bolungarvík. 

Safnið samanstendur af tvöfaldri 19. aldar verbúð, salthúsi, fiskreit og þurrkhjalli. 

Á meðal sýningagripa er sexæringurinn Ölver sem gefur góða mynd af þeim skipum sem notuð voru til fiskveiða fyrr á öldum. 

Í safninu eru einnig til sýnis veiðarfæri og ýmis tæki og tól sem notuð voru við veiðar og fiskverkun á öldum áður. 

Safnvörðurinn tekur á móti gestum íklæddur skinnklæðum líkum þeim er íslenskir sjómenn klæddust áður fyrr og lýsir því sem fyrir augu ber.

Afslættir

  • 67 ára og eldri fá afslátt.
  • 15 ára börn og yngri fá frítt

Gjaldskrá

Google maps